soldið
langt síðan að ég skrifaði hérna seinast og ég ætlaði mér í rauninni
ekkert að blogga meira í framtíðinni en samt einhvernveginn langaði mér
svo rosalega að blogga eitthvað þó svo að ég hafi voðalega lítið að
segja þessa dagana..
ég
kom heim 2.júní og það var alveg ágætt.. soldið skrýtið að sjá allt
fólkið aftur eftir svona langan tíma en ekkert/enginn hafði breyst! ég
var með kökkinn í hálsinum frá því að ég settist í bílinn heima í
Invivienda þangað til að ég var búin að vera hérna í svona 2 mánuði..
alltaf þegar ég hugsa "heim" langar mig alveg endalaust mikið til að
fara aftur út!!
þegar
ég kom heim tók ég bara fyrstu vikuna í að slaka á og hitta alla og
svona.. afi dó svo 5 dögum eftir að ég kom heim svo ég var mjög fegin
yfir því að hafa komið fyrr heim til að ná því að hitta hann gamla
minn:)
svo
eftir rúma viku fór ég að leita mér að vinnu og byrjaði í 66°Norður í
Faxafeni og var þar í allt sumar, mjög fín vinna sko... tók svo
ökuskólann með öllum 10undu bekkingunum og Einari Baldri úr hvassó:)
fékk bílprófið einhvern tímann í ágúst. fór til Danmerkur í nokkra daga
áður en skólinn byrjaði og verslaði mér föt fyrir veturinn og heimsótti
frænku mína sem býr í rosaflottu húsi rétt fyrir utan Kaupmannahöfn:)
ágætt að losna aðeins frá Íslandi aftur;)
en
svo bara byrjaði skólinn og ég var ekki beint farin að hlakka til að
fara í skólann, í 2.bekk þar sem ég þekkti engan! engan veginn sátt við
að vera ári á eftir! en svo bara erum við 4 úr "gamla" bekknum mínum.
svo ég þekkti nú alveg einhvern.. Eyrún er þarna líka sem betur fer;)
en allavega.. við erum 4 sem erum ári á eftir, 2 skiptinemar frá
Þýskalandi og Finnlandi, og 6 stelpur sem voru í bekknum í fyrra!! ég
er semsagt í 12 manna bekk!!! þar af 1 strákur!:D hehe en þetta er
voðalega fínt að vera svona fá ... :) smá munur að fara úr 38 mann
brjáluðum bekk í Dóminíska sem var alltaf syngjandi og dansandi í tíma
í 12 manna geðveikt rólegan bekk...! kannski maður læri þá eitthvað
þetta árið ?
ég
er búin að tala við Fransiscu svona 3 sinnum eftir að ég kom heim, en
Emely og Maren alveg mjög oft :) ég, Gyða, Maren, Anna og Tea frá
Danmörku ætlum svo a skella okkur út bráðlega, eða eftir svona 1-2 ár..
en hún Fransisca er komin með nýja stelpu heim til sín sem er frá
Ítalíu, en henni er búið að dreyma um að fá stelpu frá Ítalíu alveg
þvílíkt lengi. svo það er nú gott að hún fær það loksins;)
svo
er ég búin að tala við skólastjórann og eiganda skólans nokkrum sinnum
líka og þeir sakna okkar Marenar svo rosalega, það er ekkert jafn gaman
í skólanum án okkar Rubíanna;)
mér
var svo boðin vinna (eftir 4 ára suð!) á Spáni í vetur og það er miklu
meira en freistandi en ég tými ekki að sleppa skólanum annað ár svo ég
ætla að draga Silfá með mér næsta sumar að vinna í staðinn;) ég er búin
að suða í honum Tony (sem örugglega allir í kringum mig þekkja!) síðan
ég kom þangað fyrst, en hann á hótelið sem við förum alltaf á á Spáni,
ég er búin að suða í 4 ár um vinnu þar en hann sagði mér í fyrsta lagi
að ég væri náttla allt of ung, svo í fyrra þá var ég ekki of ung, en þá
talaði ég enga spænsku svo hann sagði mér að um leið og ég myndi skilja
spænsku myndi hann vilja mig í vinnu! og YA! komin með það svo hann
hefur enga ástæðu til að ráða mig ekki í vinnu!;) ég sendi honum svo
bréf og sagði að hann yrði nú bara að ráða mig í vinnu núna því ég er
komin með allt sem hann vill;)
og búið og gert!;)
ég
ætla ekki að hafa þetta neitt lengra núna, er að passa tvo litla stráka
svo ég ætla ekki að hanga í tölvunni lengi. sé svo til hvort ég blogga
eitthvað í vetur.. fylgstu með;)